Draugaslóð

Draugaslóð


Unabridged

Sale price $4.47 Regular price$8.93
Save 50.0%
Quantity:
window.theme = window.theme || {}; window.theme.preorder_products_on_page = window.theme.preorder_products_on_page || [];

Eyvindur Þóruson og amma hans búa ásamt tveimur köttum í gömlum bústað við Elliðavatn. Þar hefur lífið gengið sinn vanagang þau þrettán ár sem Eyvindur hefur lifað en nú liggur eitthvað í loftinu. Sami magnaði draumurinn sækir aftur og aftur að Eyvindi – þar æða trylltir hestar um í þoku, jörðin opnast, hverir gjósa og kofar brotna í spón.

Örlögin leiða Eyvind upp á öræfi þar sem hann fetar magnaða draugaslóð á vettvangi Fjalla-Eyvindar, Reynistaðarbræðra og síðast en ekki síst nýliðinna atburða sem hann sogast inn í án þess að fá nokkru um það ráðið.

Kristín Helga Gunnarsdóttir hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp vinsælustu rithöfunda landsins. Draugaslóð er spennandi bók þar sem nútíð og fortíð fléttast saman, útilegumenn og draugar leika lausum hala og óbyggðirnar breiða úr sér.